Ég sit hér á Café Roma og er í hálfgerðu áfalli; kunningi minn var að sýna mér heilsíðugrein í "Viðskiptablaðinu" sem vakti vægast sagt mér óhug og ótta. Það er skiljanlegt að Viðskiptablaðið vilji sækja út fyrir svið viðskiptanna og leita fanga á meðal listamanna, en það verður að teljast einkar óheppilegt val að láta þá Guðmund Odd og Ásmund Ásmundsson um að skrifa pistla á síður blaðsins. Sá fyrrnefndi er alræmdur róttæklingur og undirróðurs maður sem hefur margoft orðið vís að því að reyna að heilaþvo nemendur sína í Listaháskólanum, eftir því sem heimildarmenn mínir segja, og þá á ég marga og örugga. Og heilaþvotturinn sá er ekki jafn meinlaus og margir halda: Guðmundur Oddur er einn helsti páfi svokallaðra póstmódernista hér á landi, og veitir forstöðu uppivöðslusömum hópi vandræða gemlinga sem hefst við í ólöglegu verksmiðju húsnæði í miðbænum, krotar á veggi og fer um í hópum, oftar en ekki ofurölvi.
Sömu sögu er að mörgu leyti að segja um Ásmund, en hann er þó skárri, má segja, en Guðmundur Oddur, því hann er Múslimi og leggur þó að minnsta kosti spilin á borðið. Í pistli í Viðskiptablaðinu í síðustu viku tekur Ásmundur sig til og hvetur til hryðjuverka. Slíkt hefði kanski þótt fyndið fyrir 5-10 árum síðan en við nú verandi heims ástand er slíkt afar ósmekklegt og í raun atlaga að aðstandendum þeirra sem létu lífið í árásinni á Tvíbura turna þann 11. september. Það er ekkert gamanmál, en ég hef hitt fólk sem þarna missti allt sitt. Ásmundur segir sem svo, að afkomendum Halldórs Laxness og fulltrúum Rithöfundasambandsins beri að
leggja eld að Gljúfrasteini, háborg íslenskrar ritmenningar.

Hvers vegna? Jú, útaf því að vel meinandi einkaaðilar í stjórn Glitnis ákváðu, af gjafmildi einni saman, að færa Gljúfrasteini litla iPod spilara að gjöf. Auðvitað má gagnrýna íslenska banka fyrir ýmislegt, svo sem okur, gjálífi og ólifnað, en að hrækja svona framan í einfalda góðmennsku, og það með hvetja til hryðjuverka, það er engum samboðið. Ekki þarf heldur lengi að skoða sig um á heimasíðu samnefnds Ásmundar til að sjá að þar er ekki listamaður á ferðinni, heldur enn einn "gjörninga" klúbburinn; sjá til dæmis þetta fáránlega myndskeið
hér.Sem aðdáandi verka Halldórs Laxness (einkum seinni verkanna, t.d. Brekkukotsannáls -- fyrri verkin fannst mér of einfeldningsleg og á köflum hrokafull) og meðlimur í Rithöfundasambandinu finnst mér það vera skylda að hreinlega tilkynna svona óhæfu til Dómsmálaráðherra. Eru ekki nýju lögin um hryðjuverka ógn meðal annars til þess að koma í veg fyrir að hvatt sé til þeirra? Menn eins og Guðmundur Oddur og Ásmundur víla ekki fyrir sér að nota stöðu sína sem kennarar við Listaháskólann og pistlahöfundar til að heilaþvo, innræta og kúga ungt fólk til að fremja óhæfuverk. Á slíku verður að taka.