Núna er Hanna Birna, mikil andans kona og skörungur -- í alvöru merkingu, ekki eins og Ingibjörg Sólrún, sem er bara tæki í höndum Baugsveldisins og gamalla kvennalistakellinga sem saman ráða meiru í íslensku samfélagi en við höldum (meira um það seinna) og það er flott hvað Morgunblaðið, undir nýrri ritstjórn annars eldhuga og forks, Ólafs Stefánssonar, hefur gert henni góð skil og systur hennar. Hanna Birna er að mínu mati mikill leiðtogi og á eftir að skipa sér á sess með fleiri alvöru konum sem hafa náð árangri -- á eigin forsendum, ekki með einhverjum kvótum, sérsamningum eða sérmeðferð, eins og til dæmis Ingibjörg Sólrún sem hefði aldrei komist á fram í alvöru stjórnmálaflokki eins og Sjálfstæðisflokknum -- svo sem konum á borð við Bryndísi Höllu sem hafa kosið að mennta sig sérstaklega í leiðtogafræðum, eitthvað er það nú annað og gagnlegra en öll þau póstmódernísku "menningar" og "bókmennta" fræði sem fólk nú til dags er að sóa tíma sínum í!Það eru bjartir dagar framundan í Reykjavík, nú verður loks tekið til hendinni og undið ofan af fortíðarvanda R-listans og fjárhagnum komið í samt lag. Stjórnmálin væru ekki stjórnmál ef ekki væri fyrir leiðtogana, þannig er það bara. Meira að segja listamaður eins og ég veit svo mikið!
Hér gengur inn enginn annar en einn nafntogaður kunningi úr bloggheimum, best að hvíla aðeins skrifin og heilsa upp á hann -- kanski verður samræðana innblástur fyrir eitt "hugspjót" eins og ég kalla þetta "blogg" upp á fallega íslensku. Á íslensku má alltaf finna svar!
Góðar stundir,
Tandri Á.
No comments:
Post a Comment