Monday, August 25, 2008

Lágkúruleg "ljóða" hátíð

Það þarf ekki að koma neinum á óvart að sjálfskipuðu byltingar órabelgirnir í Nýhil hafi enn og aftur staðið fyrir einni af sínum svokölluðu "ljóða" hátíðum. Það þarf ekki að spyrja að því hvort mér, sem hefur gefið út eina af bókum mínum hjá Nýhil, hafi verið boðið -- nei, það var ekki svo gott, enda finnst þeim háu og listrænu herrum sem þar ráða mín ljóð í raun kannski ekki vera ljóð. Þó komast þau nær því að vera ljóð heldur en helmingurinn af því rusli sem núna kemur út hjá Nýhil, einhverjar teikningar, bull og klám eftir ungmenni sem ættu frekar að fara námskeið í leikrænni tjáningu hjá henni Jónínu minni en að vera að þreyta samborgara sína á vitleysunni.

Þótt að margir hefðu ábyggilega móðgast og farið í bústað um svona helgi þá ákvað ég nú samt að kíkja á eitt af þeirra svokölluðu "upplestrar" kvöldum. Það var vægast mikil vonbrigði, eða hvað á maður að segja -- kanski bjóst ég ekki við miklu. Þarna var einhver ungur maður (ég rugla þeim öllum saman, hugsanlega var þetta Valur B. Antonsson) sem var greinilega í einhvers konar lyfjamóki að þylja upp klámrokur og útúrsnúninga á ljóðum Sigfúsar Daðasonar, einu mesta skáldi íslensk módernisma. Þótt hann hafi haft rangt fyrir sér í pólitík, en það fyrirgefst enda var skáldskapurinn líka svo fullur af dýpt og fegurð. Segir ekki enda um alla snillinga, að þeir séu annað hvort kommúnistar, vondir við konur eða alkóhól istar! Það verður að fyrirgefast, ef þeir eru í alvörunni snillingar!

Svo var enn annar ungur maður sem nennti greinilega ekki einu sinni að vera með sannkölluð "ljóð" heldur þreytti áhorfendur á endalausum myndskeiðum sem voru bara eintal hans sjálfs ofan í mynda vél, eitthvað bull hans og endaleysa án allra formátaka og svo, það versta, árás og trúnaðarbrestur á vin minn Þórhall miðil, sem á sér marga aðdáendur í íslensku samfélagi. Það er ekkert annað en siðblinda og siðleysi að nota upptökur af þjónustu Þórhalls til að gera úr einhvers konar grín og glens úr atvinnu hans og hæfileikum, sem eru miklir, það get ég vitnað um. Ég hef í gegnum Þórhall bæði fengið dýrmætar vísbendingar um framliðna ættinga en einnig líka hvatningu og innsýn í framtíðina sem á viðkvæmu augnabliki á mínum ferli hjálpaði mér að komast yfir erfiða þröskulda, bæði í sálarlífinu og fjárhagnum, sem hefur ekki alltaf verið beisinn hjá andans manni eins og mér -- sem hugsar oft ekki um veraldleg gæði heldur er með höfuðið í skýjunum!

Meira seinna -- kaffið er svo gott hér á Kaffi Roma og ekki skemmir nafnið fyrir okkur heimsborgalegum lífsnautnamönnum sem þekkjum "borgina með barnsandlitið" eins og lófann á okkur! T.

1 comment:

Vidar Thorsteinsson said...

Sæll Tandri. Það er óþarfi að vera með svona árásir, við buðum þér á hátíðina þegar hún var haldin í fyrra og þá sagðist þú ekki hafa áhuga. Það er líka skrítið að lesa þessar ákúrur á bloggi þínu, þegar þú varst í miklum samskiptum við okkur í tengslum við umbrot á þýðingaritinu. Vona bara að þér líði vel. Kær kveðja, Viðar