Friday, August 29, 2008

Ásdís Rán – vertu þú sjálf

Það er athyglisvert að fylgjast með blogg færslum og fréttum landsmanna af snótinni glæsilegu, henni Ásdísi Rán. Ég hef ekkert á móti konum, en femínista þoli ég ekki. Mér sýnist Ásdís Rán ekkert vera að gera annað en að nýta sér þann yndisþokka sem guð gaf henni, þann kvenlega – um hvað getur femínistmi snúist annað en það að konur geri sér mat úr því sem þær hafa?

Ég virði það í fari allra manneskja, ekki bara kvenna, þegar þær eru þær sjálfar, fylgja sann færingu sinni og hlusta ekki á vitleysu. Ásdís Rán á auðvitað að vera hún sjálf, ganga fram fyrir skjöldu og þiggja hið rausnarlega boð Playboy-veldisins um mynda töku. Að fá slíkt tilboð er eins og fyrir ljóðskáld að gefa út sína fyrstu ljóðabók – allir sannir listamenn hafa innra með sér lítinn neista sem logar, en hann verður að komast út, annars kulnar hann að eilífu.

Ég segi því: Ásdís Rán: vertu þú sjálf, láttu ekki smámenni, afstæðishyggjumenn og pólitískt rétt hugsandi póst módernista segja þér hvað þú átt að gera! Þú átt þér fjölda stuðnings manna og aðdáenda.

Og að lokum: aldrei myndi mér detta í hug, Ásdís Rán, að birta mynd af þér án þess að geta ljós myndara. Það er eins og ef einhver myndi birta ljóð eftir mig á heima síðu sinni án þess að geta þess að sjálfur Tandri Árdal væri höfundurinn! Sá armi durgur mætti eiga mig á fæti!

LJÓSMYNDARI: Arnold www.arnold.is

No comments: